Hólmfríður Jóhannesdóttir er fædd og uppalin í Vesturbænum í Reykjavík.
Árið 1996 lauk hún einsöngvaraprófi frá Franz Schubert konservatorium í Vín.
1996-1999 stundaði Hólmfríður nám í söng og leiklist í Vín og Mílanó en hún stundaði einnig tungumálanám á ítalíu.
Árið 2002 lauk hún Burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og árið 2003 lauk hún lokaprófi í kennslufræði frá The Royal Akademi of Musik in London.
Árið 2005-2006 var Hólmfríður tónlistar og veislustjóri Listasafns Íslands og árin 2006-2008 var Hólmfríður skólastjóri söngskólans Anima og söngkennari, auk þess að vera framkvæmdastjóri Anima gallerís.
Hólmfríður er nýflutt heim frá Vín í Austurríki en þar hefur hún búið síðastliðin tvö ár þar sem hún starfaði með ferðaóperu og söng Hans í barnaóperunni Hans og Gréta eftir Humperdinck í Austurríki og í þýskalandi. Hólmfríður kom einnig fram á fjölda Galatónleikum í Vín ásamt bassasöngvurum.. Hún hefur einnig sungið víða í Evrópu.
Hólmfríður starfar nú sem einsöngvari og söngkennari.
|
|
|
|